03nóvember

viskubrunnur ragnheiðar

nokkur góð ráð til að fara eftir! sum sem eru voða basic, en maður gleymir þeim með aldrinum.


* það má ekki borða gulan snjó!
* maður á að klára matinn sinn, sum börn í heiminum fá bara ekkert að borða!
* ekki hlaupa með skæri. það er án djóks hættulegt! sérstaklega þegar maður á sníðaskæri sko!
* ekki brjóta bein, hluti né hjörtu.
* ekki fara að sofa ósátt/ur
* Vertu memm, eins oft og þú getur. þú ert kannski að bjarga deginum hjá einhverjum með því.
* vertu vinur vina þinna. þegar þú þarft á þeim að halda þá eru þeir nálægt!
* brostu við því sem gerist. líka þegar þig langar að gráta yfir því, vegna þess að líkur eru á að það hafi allavega eitthvað smá gott í för með sér líka!

* elskaðu alla. það er miklu skemmtilegra en að hata alla!

Rags out
03. nóvember 2008 klukkan 14:18
Ragga R
3 athugasemdir
27október

elskaðu friðinn, strjúktu kviðinn

Dagarnir farnir að styttast, en það þýðir ekki meiri svefn! ónei! það þýðir meira kósí!



Frönsk súkkulaðikaka

1 1/4 dl sterkt kaffi

200g sykur

250g suðusúkkulaði

225g smjör

4 egg

Sjóða kaffi og sykur saman í potti þar til það verður að sírópi, bæta smjörinu og súkkulaðinu útí sírópið á meðan það er heitt og láta bráðna.

Kæla aðeins, þangað til er orðið fingurvolgt. Þeyta eggin saman við blönduna, eitt í einu.

Smyrja 24 sm lausbotna kökuform og strá hveiti á botninn og barmana.

Hella deiginu í og baka við 170°c í uþb 60 mín (fylgjast vel með samt, í mínum ofni þurfti bara eitthvað 40 mín!)

 

 

verði ykkur að góðu

27. október 2008 klukkan 13:47
Ragga R
1 athugasemd
20október

Þakka fyrir mig! Thanks

Það er kannski ekki alveg komið að thanksgiving í BNA-inu en samt sem áður þá vaknaði ég í morgun full af þakklæti! Ég er þakklát fyrir svo margt þessa dagana að ég ákvað að blogga bara um það hér og nú!

Takk fyrir mig

Ég á yndislega vini sem styðja við bakið á þeim sem fara á bak á brotnum hestum! Ef maður fellur af, þá grípa þeir mann umsvifalaust!
Ég get þakkað ónæmiskerfi líkama míns fyrir að bregðast vel við pestinni sem er að ganga og matareitruninni sem ég og Berglind fengum í gær! Við skildum eftir humarsúpu á nokkrum stöðum á leiðinni frá Stokkseyri og í bæinn! En samt sem áður þá líður mér ágætlega núna og hugsa að maginn á mér sé mjög sterkur og hafi bara náð að losa sig við eitrunina í frostinu í gær.
Ég þakka líka þeim sem ég hef kynnst á síðustu 11 mánuðum fyrir góða tíma og góðar vináttur!
I give thanks to my new friend who might soon be able to read my blog! You are gold, my darling! GOLD!
og ég þakka að lokum fyrir það að vera hamingjusöm, því eftir nokkrar dýfur á síðustu vikum þá hef ég komist að því að það er ekki sjálfgefið!

Takk!

R
20. október 2008 klukkan 17:06
Ragga R
1 athugasemd
09október

Ísland ögrum skorið! eg vil nefna þig!





Kæru Íslendingar


Á þessum tímamótum sem Ísland og við íslendingar erum á má ekki gleyma góðu hlutunum! ég efast stórlega um að efst í huga okkar allra sé hversu heppin við erum að vera lifandi, eiga hamingju og kærleik með fjölskyldu og vinum og hversu heppin við erum að eiga land sem nærir okkur og gefur okkur skjól! Einnig efast ég um að í huga okkar allra sé samúð með þeim sem minna meiga sín! Já, minna en við meiraðsegja! Ég legg til að allir noti tímann sem fer í áhyggjur af peningamálum, stress og vanlíðan í að hugsa aðeins til þeirra sem hafa ekki mat, ekki skjól og ekki tækifæri til þess að læra annað af lífinu en að reyna að komast af!

Með þessum orðum mínum er ég ekki að bjóða okkur öllum til áhyggjuveislu af öðrum þjóðum og öðrum heimshlutum þar sem hlutirnir eru verri, hledur einungis að stinga uppá að við sendum góðar hugsanir til þeirra jafnt sem okkar! Við þurfum að sjálfsögðu líka á jákvæðninni að halda á tímum sem þessum!

Notum tímann í að hugsa vel um okkur og ástvini okkar! Tökum okkur tíma á hverjum degi til að hrósa hvort öðru, sameinast í góðum hlátri og hugsa vel um náungann! Það þýðir ekkert að fara útí búð og reiðast afgreiðslufólkinu sem ekki getur staðið undir væntingum okkar á þessum tímum! Brosum frekar vingjarnlega og bjóðum góðan dag í stað þess að bjóða slæman dag.

Gleðjumst, Íslendingar! Við eigum svo margt annað en peninga og peningaáhyggjur! Við eigum hvort annað að! Ekki margar aðrar þjóðir geta sagt þetta! Við erum fá og það hjálpar til við samstöðu og sameiningu!

ÁFRAM ÍSLAND

Við bara gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar besta!

og ef við gerum það með gleði og hamingju, verður dagurinn, vikan, mánuðurinn og lífið svo miklu betra!

Ragga Jákvæða
09. október 2008 klukkan 11:31
Ragga R
4 athugasemdir
28september

ný vefsíða!!





þá er ný vefsíða tilbúin!



www.raggaraggaragga.com



tékkið á makeup myndum, vídjóum, módelmyndum og fleiru!



Ragga
28. september 2008 klukkan 10:32
Ragga R
7 athugasemdir
24september

ÉG ELSKA



ÉG ELSKA :

* oatmeal rasin cookies

* að sofa út í hreinum rúmfötum

* að vera í heitri sturtu lengi

* dekur

* kærastann minn

* The Office US

* að vera í formi

* gott veður og góða bók

* chai te

* kúrekaskyrtur

* hvítar liljur

* að vera búin að slétta hárið á mér

* Dag Orra

* nachos

* Californiu

* Reykjavík meira

* sólina

* þæginlegar gallabuxur

* COCA COLA LIGHT!


hvað elskar þú?

24. september 2008 klukkan 02:05
Ragga R
8 athugasemdir
15september

Someone bless America!

Nokkrar litlar sögur úr sveitinni í Californiu




Little lethal lemon attempt!
Ég var að hoppa á trampolíninu í bakgarðinum fyrir nokkrum dögum! ég gerði þetta mér til gamans og til að reyna að komast aftur í gír sem ég hef sjaldan komist í síðan ég var 5 ára. Ég var búin að kaupa fullt af avacado sem Zack ætlaði að nota í dýrindis guacamole! Ég beið í ofvæni á trampolíninu eftir að guac-ið yrði tilbúið svo ég gæti hámað í mig eftir hoppið. Zack skaust þá upp í brekku í sítrónutré nágranans til að ljúka guac gerðinni. Hann öskrar niður til mín og matta að hann ætli að kasta sítrónunum. Þar sem ég var uppá trampolíninu þótti mér tilvalið að reyna að grípa sítrónurnar. Fyrri sítrónan kom að mér og strauk fingurbroddana mína og skoppaði síðan á trampolínið og þaðan á steypuna. Ég hugsaði með mér, nei þetta verður bara hættulegt, svo ég steig til hliðar og fór alveg á hinn enda trampolínsins! ég horfi upp í himinnninn og bíð spennt eftir næsta kasti. Það næsta sem ég man er að ég ligg, face down, á trampolíninu. Ég fékk sítrónuna, sem ég held að hafi annaðhvort verið frosin eða steinafyllt þar sem hún var svo hörð, beint í hægra brjóstið! Mér algjörlega að óvörum! Ég hló svo mikið að ég gleymdi hversu vont þetta var þangað til ég fór í sturtu og leit í spegilinn! Þar stóð ég nakin með blátt brjóst og kramið sjálfstraust. En eins góðhjörtuð og ég er (og af því að Zack miðaði ekki á los júllos sem gerði þetta að miklu slysi) fyrirgaf ég honum og ennþá eru öll dýrin í skóginum vinir!



Bright Lights, Big City, Mad cash
Vegas ferðin okkar byrjaði á keyrslu í 5 tíma! ég var víruð eftir keyrsluna enda mjög spennt að sjá ljósin! Vegas var við öllu búin þegar ég rann í hlað og tók mér opnum örmum með bjór í annari og casino wars í hinni! sú ferð verður að vera í sér bloggi en eitt get ég sagt um þessa blessuðu borg! Það er of mikið af mat, of mikið af víni og of mikið af peningum þarna! og of lítið af sjálfsvirðingu! Bitches be crazy! það er ótrúlegt hvað dömur gera fyrir athygli, frægð og peninga!

Bang Bang Bang
þrátt fyrir mikinn miskilning um kunnáttu mína í að kasta bolta, þá kann ég bara nokkuð vel að skjóta úr byssu! ég hæfði ekki bara targetið á mjög prófessional hátt, heldur skaut ég kauða beint í munninn þrisvar og skaut úr honum 4 hryggjaliði! Þegar blað-targetið kom fljúgandi aftur þá sagði kauði (með byssurnar í vasanum og McCain glottið á vörunum) "Wow, thatll do it! thats pretty good! Thats actually really good" og ég tók mig bara til og flaug útúr gun range-inu á mad niggrish töffarastælum eftir að hafa skotið úr hand gun like a CSI-MIAMI pró! -- "if you are voting for OBAMA, save time, deposit your guns in bin below!" þarf ég að segja meira eða?? GO OBAMA!!


Love in the time of modern Life
ég er búin að finna mér kjól til að vera í í afmæli ömmu minnar 1.október! mig vantar hins vegar kjól til að vera í á afmælinu mínu í október og í brúðkaupi systur minnar í desember! Kreditkortið mitt hefur ekki séð svona aksjon síðan bíla Gunna fékk að læra á Bíl og keyrði til Reykjavíkur og fór í Kringluna sko! ég er bara að skella mad styles í fatakistuna og borga bara seinna, þökk sé mastercard! mín var ánægjan ameríka! efnahagurinn þinn er ögn skárri en fyrir viku síðan! já það er gaman! en ég sakna Begga míns! og Dags Orra! ó hvað ég sakna Dags Orra! honum verður rænt í lok september fyrir heilan dag af rögguknúsi og röggudekri! það verður sko ís og sleikjó og sund og svakalegheit! jeeeeiiijeeer!

15. september 2008 klukkan 06:18
Ragga R
2 athugasemdir
09september

Ódýr flug og beikonbitar

Það fór ekki vel um mig í fluginu frá NYC til LAX í gærkvöldi! ég er alltof stór fyrir amerísk lágfargjaldaflugfélög! ég fékk meiraðsegja meira pláss í kínverjaflugvélum hérna í síðasta mánuði! En ég er komin til Californniu og mætti mjög svöng hingað! Ég nappaði cesar sallati á JFK og það voru beikonbitar í því! ég skil ekki hvernig kaninn getur ekki einu sinni borðað kál án þess að bæta örlítilli fitu útá til að koma því niður! og svo halda þeir að þeir séu að borða hollt af því að þeir eru að borða sallat!


núna tekur við óprógramerað tjil! í 3 vikur! ohh já takk!
vaga að borða núna
09. september 2008 klukkan 15:58
Ragga R
5 athugasemdir
03september

Einhverra hluta vegna...

...ýtir fólk á takkana á lyftunum oftar en einu sinni þegar það er að drífa sig.

...eru bananar stundum brúnir að innan en líta samt alveg rosalega vel út að utan.

... passa sumir jakkar voðalega vel yfir axlirnar á mér, en engan vegin yfir magann.

...gera sumir í því að búa til sögur um annað fólk, sem eiga ekki einu sinni stoð né styttu í raunveruleikanum.

...trúir fólk á guð en ekki á djöfulinn.

...langar mann bara í eitthvað rosalega óhollt að borða, en líður svo ekkert betur eftirá.

...býr besta vinkona mín ennþá í Barcelona. Jafnvel þótt ég sé búin að grátbiðja hana að koma heim einsog skot!

...er lífið svo miklu flóknara þegar maður er ekki sofandi.

...eru djúpur ógeðslegt nammi, en kúlusúkk bara frábært nammi.

...eru sumir litlir með stór eyru en aðrir stórir með lítil eyru.

...fá sumir miklu meiri athygli fyrir hluti sem skipta engu máli og miklu minni athygli fyrir það sem þeir eru búnir að vinna að í mörg mörg ár!

...er erfiðara að hugsa um að borða nóg af próteini þegar maður er í fríi.

03. september 2008 klukkan 11:29
Ragga R
14 athugasemdir
30ágúst

KOMiN HEIM á LEIÐ ÚT

þá er maður komin heim í heiðardalinn! og á leið aftur út eftir eina viku! ég ætla að skella mér í 2 vikna chill í Californiu! :D það verður bara gott! ekki að fara í sund eða neitt bull! bara borða góðan mexicanskan og sveittan mat og hafa það gott!
ég er að fara að setja inn myndir bráðum! :)
R
30. ágúst 2008 klukkan 09:32
Ragga R
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Ragga R
  • Staður: Garðabær

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Textareitur

So, So you think you can tell
heaven from hell
blue skys from pain
can you tell a green field
from a cold steel rail
a smile from a veil
do you think you cal tell?